Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna íbúðarbyggðar við Hlíðarbraut 10
Athugasemdafrestur er til 4. júní 2020
Bæjarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna íbúðarbyggðar við Hlíðarbraut 10.
Tillagan er til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá umhverfis- og skipulagssviði að Norðurhellu 2, á vef sveitarfélagsins, www.hafnarfjordur.is og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir þurfa að berast á netfangið skipulag@hafnarfjordur.is eða á Hafnarfjarðarkaupstaður, bt. umhverfis- og skipulagssviðs, Norðurhellu 2, 221 Hafnarfirði, eigi síðar en 4. júní 2020.