Mál í kynningu


1.11.2021

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar vegna fjölgunar íbúða í Helgafellshverfi

Athugasemdafrestur er til 12. desember 2021

  • Helgafellshverfi

Mosfellsbær hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030 þar sem íbúðum á svæði ÍB-302 í Helgafellshverfi verður fjölgað úr 950 í 1.140.

Tillagan er til sýnis á Upplýsingatorgi Mosfellsbæjar að Þverholti 2, á vef sveitarfélagsins https://www.mos.is/ og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á netfangið kristinnp@mos.is, skipulag@mos.is eða á skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, eigi síðar en 12. desember 2021.