Mál í kynningu


14.12.2021

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps, vegna gisti- og ferðaþjónustu á Ytri Sólheimum

Athugasemdafrestur er til 22. janúar 2022

  • Ytri Sólheimar, Mýrdalshreppur

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028. Breytingin felur í sér að verslunar- og þjónustusvæði V26 á Ytri Sólheimum er stækkað úr 1,2 ha í 7,7 ha fyrir gistingu og ferðaþjónustu.

Breytingartillagan er til sýnis hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps að Austurvegi 17, 870 Vík, á vef sveitarfélagsins www.vik.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti bygg@vik.is eigi síðar en 22. janúar 2022