Mál í kynningu


23.6.2016

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur, Hverfisgata-suðurhlið, Laugavegur við Hlemm, endurskilgreining götuhliða

Athugasemdafrestur er til 4. ágúst 2016

  • Götuhliðar

Reykjavíkurborg hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 vegna annarsvegar götuhliða við suðurhluta Hverfisgötu, nr. 4-62 og hinsvegar götuhliða við Laugaveg, milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs. Í tillögunni felst að ákvæði um lágmarkshlutfall smásöluverslunar á jarðhæðum lækkar úr 50% í 30% við viðkomandi götuhliðar. Jafnframt er kveðið á um að engin ein starfsemi má taka yfir meira en 50% jarðhæða, nema smásöluverslun.

Tillagan er til sýnis til 4. ágúst 2016 í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, á reykjavik.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast til Umhverfis- og skipulagssviðs, Borgartúni 12-14, eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 4. ágúst 2016.