Mál í kynningu


5.7.2018

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna miðsvæðis í Gufunesi

Athugasemdafrestur er til 17. ágúst 2018

Borgarráð hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 vegna landnotkunarbreytinga í Gufunesi. Í tillögunni felst að breyta hluta iðnaðarsvæðisins í miðsvæði þar sem þróa á blandaða byggð atvinnu og íbúðarbyggðar.

Tillagan er til sýnis í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni, á reykjavik.is og adalskipulag.is og hjá Skipulagsstofnun.

 

Athugasemdir þurfa að berast til umhverfis- og skipulagssviðs, Borgartúni 12-14 eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 17. ágúst 2018.