Mál í kynningu


17.9.2020

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna sérstakra búsetuúrræða

Athugasemdafrestur er til 28. október 2020

Borgarráð hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 til að skýra heimildir um mögulega staðsetningu sérstakra húsnæðislausna.

Tillagan er til sýnis í þjónustusveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, á www.reykjavik.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast til Umhverfis- og skipulagssviðs, Borgartúni 12-14 eða á netfangið skipulag@skipulag.is eigi síðar en 28. október 2020.