Mál í kynningu


25.9.2020

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna þróunarsvæðis í Skerjafirði

Athugasemdafrestur er til 28. október 2020

  • Nýi Skerjafjörðurinn

Reykjavíkurborg hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010 – 2030 þar sem landnotkun í Nýja Skerjafirði er útfærð nánar, íbúðum fjölgað og dregið úr landfyllingum.

Tillagan er til sýnis í Þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12 – 14, á www.reykjavik.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á netfangið skipulag@reykjavík.is eða til Umhverfis- og skipulagssviðs, Borgartúni 12 – 14, eigi síðar en 28. október 2020.