Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Skútustaðahrepps vegna Kröflulínu og efnistökusvæða
Athugasemdafrestur er til 8. mars 2019
Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011-2023 vegna breyttrar Kröflulínu 3 og fjögurra nýrra efnistökusvæða vegna hennar.
Tillagan er til sýnis á skrifstofu Skútustaðahrepps, á vefsveitarfélagsins og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatni og/eða í tölvupósti á netfangið: gudjon@skutustadahreppur.is, eigi síðar en 8. mars 2019.