Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar, tengivirki í Öræfum
Athugasemdafrestur er til 12. október 2017
Bæjarstjórn Hornafjarðar hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 vegna tengivirkis í Öræfum.
Tillagan er til sýnis í ráðhúsi Hafnar að Hafnarbraut 27, á hornafjordur.is og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir þurfa að berast á skipulagsstjóra á Hafnarbraut 27, 780 Höfn eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is eigi síðar en 12. október 2017.