Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna Gljúfurárholts
Athugasemdafrestur er til 20. september 2019
Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2010-2022 sem felur í sér að frístundabyggð (F11 Gljúfurárholt) er felld niður og landnotkun breytt í landbúnaðarland og svæði fyrir þjónustustofnanir (S9 Gljúfurárholt).
Tillagan er til sýnis á bæjarskrifstofum sveitarfélagsins, á vef sveitarfélagsins www.olfus.is og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir þurfa að berast á bæjarskrifstofur Sveitarfélagsins Ölfuss að Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn eða á skipulag@olfus.is eigi síðar en 20. september 2019.