Mál í kynningu


5.3.2020

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps vegna ferðaþjónustu, aðstöðu til fuglaskoðunar og hverfisverndar á miðsvæði

Athugasemdafrestur er til 14. apríl 2020

  • Vopnafjörður

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026 vegna heimilda til ferðaþjónustu á landbúnaðarlandi, aðstöðu til fuglaskoðunar og hverfisverndar á miðsvæði.

Tillagan er til sýnis á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps, Hamrahlíð 15 Vopnafirði, á vef sveitarfélagsins www.vopnafjardarhreppur.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast til skipulagsfulltrúa, Hafnargötu 28, 710 Seyðisfirði eða á netfangið sigurdur.jonsson@efla.is eigi síðar en 14. apríl 2020.