Mál í kynningu


17.2.2021

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps vegna veiðihúss í Ytri-Hlíð

Athugasemdafrestur er til 2. apríl 2021

  • Veiðihús Ytri Hlíð

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026 og deiliskipulagstillögu vegna veiðihúss í Ytri-Hlíð.

Aðalskipulagstillaga ásamt umhverfisskýrslu og deiliskipulagstillaga eru til sýnis á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps, Hamrahlíð 15 á Vopnafirði, á vef sveitarfélagsins www.vopnafjardarhreppur.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast til skipulags- og byggingarfulltrúa Vopnafjarðarhrepps Hafnargötu 4, 710 Seyðisfirði eða á netfangið sigurdur.jonsson@efla.is eigi síðar en 2. apríl 2021.