Mál í kynningu


17.4.2023

Vindmyllur við Lagarfossvirkjun

Mat á umhverfisáhrifum - matsáætlun í kynningu

Umsagnarfrestur er til 15. maí 2023

Orkusalan hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats vindmylla við Lagarfossvirkjun.

Matsáætlunin liggur frammi til kynningar á skrifstofu Múlaþings á Egilsstöðum og Skipulagsstofnun til 15. maí 2023 og er aðgengileg hér.

Allir geta kynnt sér áætlunina og veitt umsögn. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 15. maí til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is