Mál í kynningu


23.4.2019

Vindorkuver að Hróðnýjarstöðum, Dalabyggð

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun

Frestur til athugasemda er til og með 2. maí 2019

Storm orka ehf hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum á 80 til 130 MW vindorkuvers að Hróðnýjarstöðum, Dalabyggð.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 2. maí 2019 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.