Liðnir viðburðir

Kynningar- og samráðsfundur um gerð landsskipulagsstefnu - Keflavík

Skipulag um loftslag, landslag og lýðheilsu

  • 4.4.2019

Hafin er vinna við gerð viðauka við gildandi landsskipulagsstefnu þar sem mótuð verður nánari skipulagsstefna um loftslagsmál, landslag og lýðheilsu.

Lýsing þar sem gerð er grein fyrir hvernig fyrirhugað er að standa að mótun stefnunnar liggur fyrir og stendur Skipulagsstofnun nú fyrir kynningar- og samráðsfundum um landið þar sem hún verður kynnt. Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að koma og kynna sér hvernig fyrirhugað er að standa að mótun landsskipulagsstefnu og taka þátt í umræðum um æskilegar áherslur og aðgerðir í landsskipulagsstefnu varðandi loftslagsmál, landslag og lýðheilsu.

Kynningar- og samráðsfundur verður haldinn í Keflavík þann 4. apríl, klukkan 15-17, á Hótel Park Inn.

Dagskrá fundar:

- Lýsing landsskipulagsstefnu, kynning og umræður.

- Umræður um áherslur og aðgerðir í skipulagi um loftslag, landslag og lýðheilsu.

 

Húsið opnar 14.45. Heitt á könnunni.

Allir velkomnir.

 

Nánari upplýsingar um ferlið má nálgast á vef landsskipulagsstefnu, landsskipulag.is .