Liðnir viðburðir

Kynningarfundur um tillögu að strandsvæðisskipulagi á Austfjörðum - Seyðisfirði

  • 28.6.2022

Fyrir liggur tillaga að Strandsvæðisskipulagi Austfjarða 2022 sem kynnt er samkvæmt 12. gr. laga um skipulag haf- og strandsvæða nr. 88/2018.

Í skipulagstillögunni er sett fram stefna um nýtingu svæðis sem nær yfir firði og flóa frá Almenningsfles í norðri að Hvítingum í suðri. Nú stendur Skipulagsstofnun fyrir kynningarfundum um skipulagstillöguna, og verður hún kynnt í tvígang á Austfjörðum. Annars vegar á Fáskrúðsfirði og hins vegar á Seyðisfirði.

Fundur á Seyðisfirði verður haldinn í menningar- og félagsheimilinu Herðubreið, 28 júní kl. 16:30-18:00.

Tillagan verður kynnt ásamt því að farið verður yfir ferli þeirrar vinnu sem nú liggur að baki. Að því loknu mun þátttakendum gefast tækifæri til að leggja fram spurningar.

Dagskrá fundar:

  • Kynning tillögu að Strandsvæðisskipulagi á Austfjörðum.
  • Spurningar og umræður.

Öll sem hafa áhuga eru hvött til að koma og kynna sér tillöguna og taka þátt í umræðum.

Húsið opnar kl. 16:15. Heitt verður á könnunni.

Tillöguna ásamt frekari upplýsingum um kynningartíma og frest til að koma að athugasemdum má nálgast hér. Nánari upplýsingar um ferlið má finna á hafskipulag.is