Liðnir viðburðir

Námskeið um skipulagsmál fyrir kjörna fulltrúa - BIÐLISTI

  • 20.1.2011, 10:00 - 17:00, Radisson BLU Hótel Saga

Námskeiðið er fullbókað, hægt er að skrá sig á biðlista og verður haft samband ef pláss losnar. Tekið verður til skoðunar hvort tilefni sé að endurtaka námskeiðið. Nánari upplýsingar um það síðar hér á heimasíðunni

Skipulag er eitt af stóru viðfangsefnum sveitarfélaga og sem getur haft áhrif á efnahag þess og gæði umhverfis til langrar framtíðar. Skipulag er því mikilvægt stjórntæki hvað varðar lífsgæði íbúa og sjálfbæra þróun. Kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum og skipulagsnefndum bera ábyrgð á ákvörðunum sem teknar eru með skipulagi og framfylgd þeirra ákvarðana. Skipulagsstofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa ákveðið að halda námskeið um ábyrgð og hlutverk kjörinna fulltrúa í skipulagsmálum. Jafnframt verður farið yfir helstu nýmæli nýrra skipulagslaga nr.123/2010 og laga um mannvirki nr. 160/2010.

Staðsetning
Námskeiðið verður haldið í Stanford salnum á Radisson Blu Hótel Sögu, Reykjavík þann 20. janúar nk. á milli kl. 10 - 17.  

Námskeiðsgjald er kr. 8.000 fyrir fyrsta mann frá sveitarfélagi og kr. 5.000 fyrir alla aðra frá sama sveitarfélagi.
Hádegisverður, kaffi og meðlæti er innifalið í námskeiðsgjaldi.

Hægt er að nálgast dagskrána hér.
Hægt að nálgast erindin og hljóðskrár frá námskeiðinu hér