Liðnir viðburðir

Kynningarfundur um tillögu að landsskipulagsstefnu 2013-2024

  • 18.10.2012, 13:30 - 15:30, Austurbrú, Tjarnarbraut 39, Egilsstaðir

Skipulagsstofnun mun halda fund á Egilsstöðum 18. október í Austurbrú, Tjarnarbraut 39 þar sem kynnt verður tillaga að landsskipulagsstefnu 2013 – 2024 sem auglýst hefur verið samkvæmt 11. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Á kynningarfundunum munu Stefán Thors og Einar Jónsson kynna:

Markmið og áhrif landsskipulagsstefnu og staða í skipulagskerfinu

Ferli landsskipulagsstefnu og samráð

Áherslur ráðherra fyrir gerð landsskipulagsstefnu

Helstu forsendur, sviðsmyndir og afmörkun stefnumótunar

Stefna

Skipulagsmál á miðhálendi Íslands

Búsetumynstur og dreifing byggðar

Skipulag á haf- og strandsvæðum

Umhverfismat landsskipulagsstefnu 2013-2024