Liðnir viðburðir

Kynningarfundur um tillögu að landsskipulagsstefnu 2013-2024

  • 30.10.2012, 16:00 - 18:00, Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6
Skipulagsstofnun mun halda 2 fundi í Reykjavík 30. október í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, kl. 13.00 og kl. 16.00 þar sem kynnt verður tillaga að landsskipulagsstefnu 2013 – 2024 sem auglýst hefur verið samkvæmt 11. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


Á kynningarfundunum munu Stefán Thors og Einar Jónsson kynna:

Markmið og áhrif landsskipulagsstefnu og staða í skipulagskerfinu

Ferli landsskipulagsstefnu og samráð

Áherslur ráðherra fyrir gerð landsskipulagsstefnu

Helstu forsendur, sviðsmyndir og afmörkun stefnumótunar

Stefna

     Skipulagsmál á miðhálendi Íslands

     Búsetumynstur og dreifing byggðar

     Skipulag á haf- og strandsvæðum

Umhverfismat landsskipulagsstefnu 2013-2024