Liðnir viðburðir

Umhverfismatsdagurinn 2017

  • 7.6.2017, 13:00

Umhverfismat - áskoranir og aðferðir

Norræna húsinu, miðvikudaginn 7. júní kl. 13:00-16:30

Dagskrá Umhverfismatsdagsins var að þessu sinni helguð nýjum áskorunum og aðferðum á sviði umhverfismats.

Í fyrri hluta málþingsins var fjallað um ýmsar nýjar áskoranir sem tengjast mati á umhverfisáhrifum, svo sem út frá nýlegum dómum og úrskurðum, alþjóðlegum markmiðum í  loftslagsmálum, nýrri vistgerðarflokkun íslenskrar náttúru og lagaumgjörð mats á umhverfisáhrifum.

Í seinni hluta málþingsins deildu sérfræðingar sem koma að umhverfismati úr ólíkum áttum hugleiðingum um hvernig nýjar áskoranir og aðferðir birtast í þeirra störfum tengt náttúruvernd, samráði, línulögnum, vegagerð og fleira.

Upptökur og glærur


13:00-13:20Nýjar áskoranir og aðferðir við umhverfismat, 
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar 

Upptaka   Glærur

13:20-13:40 Vistgerðir á Íslandi og mikilvæg fuglasvæði - ný aðferðafræði
Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands
Upptaka Glærur
13:40-14:00Mat á umhverfisáhrifum - væntanlegar lagabreytingar
Íris Bjargmundsdóttir, lögfræðingur, Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

Upptaka  Glærur

14:00-14:20Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, hlutverk þeirra og áhrif
Fulltrúi verkefnisstjórnar um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Upptaka  Glærur
14:20-14:30Umræður
14:30-14:50Kaffihlé
14:50-15:05Þegar suðinu sleppir
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Landvernd
Upptaka  Glærur
15:05-15:20Undirbúningur og eftirfylgni
Auður Andrésdóttir, Mannvit 
Upptaka   Glærur
15:20-15:35Hugleiðingar um Hornafjörð
Erna Bára Hreinsdóttir, Vegagerðin
Upptaka   Glærur
15:35-15:50Ábyrgð, áskoranir og ávinningur
Rut Kristinsdóttir, Landsnet
Upptaka  Glærur
15:50-16:05Samtal við samfélagið
Sigrún Ágústsdóttir, Umhverfisstofnun
Upptaka  Glærur
16:05-16:20Umræður
16:20-16:30Samantekt/málþingi slitið