Mál í kynningu


23.5.2022

Fjarðarheiðargöng

Mat á umhverfisáhrifum - kynning á umhverfismatsskýrslu

Kynningartími umhverfismatsskýrslu er til 5. júlí 2022

Vegagerðin hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu fyrir Fjarðarheiðargöng í Múlaþingi.

Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar.

Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg hér auk þess sem framkvæmdaraðili hefur sett upp vefsjá fyrir framkvæmdina þar sem m.a. má nálgast viðauka með umhverfismatsskýrslunni. 

Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg á skrifstofu Múlaþings og hjá Skipulagsstofnun í Borgartúni 7b í Reykjavík.

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 5. júlí 2022 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.