Mál í kynningu


4.7.2016

Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði, Árneshreppi

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

Kynningartími stendur frá 1. júlí til 29. ágúst 2016

Vesturverk hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar. 

Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.

Frummatsskýrsla er aðgengileg hér og á skrifstofu Árneshrepps, hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, Norðurfirði, Skipulagsstofnun og í Þjóðarbókhlöðunni.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 29. ágúst 2016 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.

Vakin er athygli á að Vesturverk stendur fyrir kynningarfundi á frummatsskýrslu í félagsheimilinu í Trékyllisvík miðvikudaginn 6. júlí næstkomandi kl. 14:00 og miðvikudaginn 10. ágúst hjá Verkís, Ofanleiti 2 í Reykjavík, kl 14:00. Allir eru velkomnir.