Hvammsvirkjun, ferðaþjónusta og útivist og landslag og ásýnd lands
Athugasemdafrestur er til 27. maí 2016
Tillaga að matsáætlun í kynningu
Landsvirkjun hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna Hvammsvirkjunar í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir hafa rétt til að kynna sér tillöguna og leggja fram athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 27. maí 2016 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.