Mál í kynningu


27.1.2022

Múli vindorkugarður, Borgarbyggð

Mat á umhverfisáhrifum - matsáætlun í kynningu

Qair Iceland ehf. hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats 78-95 MW vindorkugarðs í landi Hvamms í Borgarbyggð.

Matsáætlunin er aðgengileg hér. Allir geta kynnt sér áætlunina og veitt umsögn.

Vakin er athygli á því að framkvæmdaraðili mun kynna framkvæmdina á opnum streymisfundi 10. febrúar nk. kl. 20:00. Vefslóðin á streymisfundinn er www.efla.is/streymi. 

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 25. febrúar 2022 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.