Mál í kynningu


24.3.2020

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar vegna íbúðarbyggðar í landi Glæsibæjar

Athugasemdafrestur er til 21. apríl 2020

  • Glæsibær

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 vegna íbúðarbyggðar í landi Glæsibæjar fyrir allt að 18 íbúðarlóðir.

Tillagan er til sýnis á sveitarskrifstofu Hörgársveitar í Þelamerkurskóla, á vef sveitarfélagsins horgarsveit.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is eigi síðar en 21. apríl 2020