Mál í kynningu


11.11.2021

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028 vegna afþreyingar- og ferðamannasvæðis við Sólheimajökul

Athugasemdafrestur er til 17. desember 2021

  • Sólheimajökull

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028.

Í breytingunni felst að verslunar- og þjónustusvæði V12, ferðaþjónusta við Sólheimajökul, er breytt í afþreyingar og ferðamannasvæði, AF1 og svæðið er stækkað úr 1 ha í 5,3 ha.

Tillagan er til sýnis hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, á vef sveitarfélagsins www.vik.is og hjá Skipulagsstofnun

Athugasemdir þurfa að berast skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. eigi síðar en föstudaginn 17. desember 2021