Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Norðurþings vegna efnistökusvæða
Athugasemdafrestur er til 30. nóvember 2018
Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030 vegna fjögurra nýrra efnistökusvæða.
Tillagan er til sýnis á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík, á vef sveitarfélagsins www.nordurthing.is og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík eigi síðar en 30. nóvember 2018.