Mál í kynningu


14.5.2018

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur, Kópavogsgöng

Athugasemdafrestur er til 22. júní 2018

Reykjavíkurborg hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 vegna Kópavogsganga. Göngin eru felld úr aðalskipulagi, ásamt tilheyrandi umferðartengingum í Fossvogi og Suður-Mjódd, auk þess sem miðsvæði í Suður-Mjódd er stækkað til austurs.

Tillagan er til sýnis í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, á www.reykjavik.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast til umhverfis- og skipulagssviðs, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 22. júní 2018.