Mál í kynningu


17.3.2017

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Skaftárhrepps vegna ferðaþjónustu í Tungu

Athugasemdafrestur er til 3. apríl 2017

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Skaftárhrepps 2012-2022 vegna nýs 7,6 ha verslunar- og þjónustusvæðis (V-9) í landi Tungu.

Tillagan er til sýnis hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Skaftárhrepps, Klausturvegi 10, Kirkjubæjarklaustri, á  heimasíðu sveitarfélagsins á heimasíðu sveitarfélagsins og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu Skaftárhrepps að Klausturvegi 10 á Kirkjubæjarklaustri eða á netfangið bygg@klaustur.is eða bygg@vik.is eigi síðar en 3. apríl 2017.