Mál í kynningu


10.3.2016

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Hraunvellir

Athugasemdafrestur er til 8. apríl 2016

  • Uppdráttur eftir breytingu

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016 vegna nýs verslunar- og þjónustusvæðis (V12)  í landi Hraunvalla.

Tillagan er til sýnis til 8. apríl 2016 hjá skipulagsfulltrúa á Dalbraut 12 á Laugarvatni, á vef skipulagsfulltrúa og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast til skipulagsfulltrúa eða á netfangið petur@sudurland.is eigi síðar en 8. apríl 2016.