Skipulag og náttúruvá

  • 2.5.2024, 9:00 - 11:00, Skipulagsstofnun

Skipulagsstofnun boðar til morgunfundar um skipulagsmál og náttúruvá, 2. maí næstkomandi, frá klukkan 9.00-11.00, í húsakynnum Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b. 

Skráning á fundinn fer fram hér. Fundurinn verður einnig sendur út á teams, í gegnum þennan hlekk hér

Skipulagsgerð er mikilvægur vettvangur til þess að takast á við þær áskoranir sem fylgja náttúruvá hvort sem er af völdum loftslagsbreytinga, eldsumbrota eða annarra þátta í náttúru- og veðurfari. Á síðustu misserum hafa atburðir sem tengjast náttúruvá sett stóran svip á íslenskt samfélag til að mynda í ljósi jarðhræringa á Reykjanesskaga.

Á fundinum verður farið yfir sviðið frá ýmsum hliðum. Fjallað verður um vinnu við gerð áhættumats vegna eldgosahættu og öðrum atburðum, s.s. vatnsflóðum og ofanflóðum og hvaða lærdóm má draga af viðbrögðum ríkis og sveitarfélaga við eldsumbrotum á Reykjanesi fyrir skipulagsgerð til framtíðar.

Dagskrá

Ólafur Árnason, Skipulagsstofnun Opnunarávarp
Sigrún Karlsdóttir, Veðurstofa Íslands Staða vinnu við mat á náttúruvá
Bergrún Arna Óladóttir, Veðurstofa Íslands Eldfjallavá og hættumat henni tengt Dæmi frá Reykjanesskaga
Hafsteinn Pálsson, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti Stefnumörkun um áhættumat vegna náttúruvár
Reynir Sævarsson, Efla Vernd innviða og viðbrögð við eldsumbrotum á Reykjanes – Samtengingar hitaveitukerfa til aukins orkuöryggis
Jón Kjartan Ágústsson, SSH Sjónarhorn sveitarfélaga þegar kemur að skipulagi í skugga náttúruvár
Húsið opnar 8.30. Heitt á könnunni.


Við hvetjum fundargesti sem eiga kost á því að nýta sér vistvænar samgöngur. Hjá Skipulagsstofnun stoppa strætisvagnar númer 4, 6 og 16 en einnig er Hlemmur í göngufæri við Borgartún 7B. Næg hjólastæði er að finna fyrir utan bygginguna.