Fréttir


  • Aðalskipulagsuppdráttur, tillaga að breytingu vegna Krossvíkurbaða, Hellissandi

9.8.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Snæfellsbæjar vegna Krossvíkurbaða, Hellissandi

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Snæfellsbæjar vegna Krossvíkurbaða, Hellissandi.

Skipulagsstofnun staðfesti 8. ágúst 2023, breytingu á Aðalskipulagi Snæfellsbæjar 2015-2031 sem samþykkt var í bæjarstjórn 17. júlí 2023.

Í breytingunni felst skilgreining á landnotkun fyrir 0,43 ha afþreyingar- og ferðamannasvæði (AF-2) þar sem nú er skilgreint óbyggt svæði (ÓB-1). Þá er stækkun Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls að Brimnesi felld inn í breytinguna.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.