Fréttir


14.9.2020

Lagning ljósleiðara frá Hveravöllum til Skagafjarðar, Húnavatnshreppi og Sveitarfélaginu Skagafirði

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrirhuguð lagning ljósleiðara frá Hveravöllum til Skagafjarðar, Húnavatnshreppi og Sveitarfélaginu Skagafirði, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 19. október 2020.