Fréttir


26.8.2014

Landsskipulagsstefna - Samantekt af samráðsfundi 15. ágúst

Skipulagsstofnun hefur nú tekið saman samantekt af kynningar- og samráðsfundi um greiningu valkosta og umhverfismat vegna vinnu við landsskipulagsstefnu, sem haldinn var á Hótel Reykjavík Natura.  

Á fundinn komu um 140 manns, fjölbreyttur hópur kominn víða að, en flestir frá ríkisstofnunum og sveitarfélögum og samtökum þeirra. Í samantektinni koma fram helstu ábendingar sem ræddar voru á fundinum varðandi greiningu valkosta og umhverfismat þeirra. Efni samantektarinnar verður nýtt við útfærslu landsskipulagsstefnu sem fer fram á næstu mánuðum. 

Samantekt ábendinga úr umræðum á kynningar- og samráðsfundi um greiningu valkosta og umhverfismat.


Vakin er athygli á að hægt er að skila skriflegum ábendingum varðandi valkostina fram til 8. september næstkomandi á
landsskipulag@skipulagsstofnun.is eða í gegnum vefsíðu landsskipulagsstefnu www.landsskipulag.is