Fréttir


28.6.2010

Skálasvæði við Emstrur í Rangárþingi eystra

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að uppbygging skálasvæðis við Emstrur í Rangárþingi eystra skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 29. júlí 2010.