Fréttir


11.4.2013

Framleiðsla Alvogen á lyfjum með líffræðilegum aðferðum, Reykjavíkurborg

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framleiðsla Alvogen á lyfjum með líffræðilegum aðferðum, Reykjavíkurborg, skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 13. maí 2013.