Fréttir


27.6.2014

Framleiðsluaukning álvers Norðuráls á Grundartanga í allt að 350.000 tonn á ári

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að  framleiðsluaukning álvers Norðuráls á Grundartanga  skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000  um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 28. júlí 2014.