Fréttir


  • Haf

10.12.2015

Nýting á kalkþörungaseti í Miðfirði, 1.200 rúmmetrar á ári

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að nýting kalkþörungasets í Miðfirði skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166,150 Reykjavík. Hana er einnig að finna  hér og á  vefsjá Skipulagsstofnunar. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til  19.  janúar 2016 .