Skjólgarður með viðlegu, Grundartangahöfn
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að bygging skjólgarðs með viðlegu á austursvæði Grundartangahafnar í Hvalfjarðarsveit, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 24. október 2016.