Fréttir


20.5.2022

Staðfesting á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032

Skipulagsstofnun staðfesti 20. maí 2022 Aðalskipulag Fjallabyggðar 2020-2032 og skrá yfir vegi í náttúru Íslands, sem samþykkt voru í bæjarstjórn 16. júní 2021. Við gildistöku aðalskipulagsins fellur úr gildi Aðalskipulag Fjallabyggðar 2008-2028, ásamt síðari breytingum.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.