Fréttir


  • Árnes

4.5.2020

Staðfesting á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. maí 2020, Aðalskipulag Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029, sem samþykkt var í sveitarstjórn 8. janúar 2020. Við gildistöku aðalskipulagsins fellur úr gildi Aðalskipulag Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016 ásamt síðari breytingum.

Málsmeðferð var samkvæmt 30. - 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.