Fréttir


3.7.2023

Staðfesting á Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034

Skipulagsstofnun staðfesti 30. júní 2023 Aðalskipulag Suðurnesjabæjar 2022-2034 sem samþykkt var í bæjarstjórn 1. febrúar 2023. Við gildistöku aðalskipulagsins falla úr gildi Aðalskipulag Sandgerðisbæjar 2008-2024 og Aðalskipulag Sveitarfélagsins Garðs 2013-2030 ásamt síðari breytingum. Samhliða tekur gildi skrá yfir vegi í náttúru Íslands sem samþykkt var á sama fundi bæjarstjórnar.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.