Fréttir


23.2.2018

Staðfesting á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna stækkunar verslunar- og þjónustusvæðis að Hofi í Öræfum

Skipulagsstofnun staðfesti 22. febrúar 2018 breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 11. janúar 2018.

Í breytingunni felst að svæði fyrir verslun og þjónustu að Hofi í Öræfum stækkar úr 20 ha í 21 ha.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.