Fréttir


3.5.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akraness vegna Akraneshafnar, H1 og H2

Skipulagsstofnun staðfesti 30. apríl 2019 breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 sem samþykkt var í bæjarstjórn 26. febrúar 2019.

Í breytingunni felst lenging aðalhafnargarðs og brimvarnargarðs H1 auk þess sem hafnargarður Skarfatangahafnar er felldur út. Samhliða stækka fyrirhugaðar landfyllingar á hafnarsvæði H2 um 0,4 ha.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.