Fréttir


  • Skógarhverfi

7.12.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akraness vegna stækkunar Skógarhverfis

Skipulagsstofnun staðfesti 3. desember 2020 breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 sem samþykkt var í sveitarstjórn 10. nóvember 2020.

Í breytingunni felst að svæði fyrir íbúðarbyggð (ÍB13) í Skógarhverfi er stækkað um 9 ha og skógræktarsvæði (O9) minnkar og verður tvískipt. Gert er ráð fyrir nýrri vegtengingu við Akranesveg í norðri og svæði fyrir tjaldsvæði (O5) og hótel (V11) eru felld út.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.