Fréttir


  • Ásahreppur

7.12.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Ásahrepps vegna efnistökusvæðis við Sporðöldulón

Skipulagsstofnun staðfesti 4. desember 2020 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Ásahrepps 2010 - 2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 21. október 2020.

Í breytingunni felst stækkun efnistökusvæðis E16 við Sporðöldulón úr 0,5 ha í 1,0 ha.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.