Fréttir


  • Jarðstrengslögn Ásahreppi

4.2.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Ásahrepps vegna jarðstrengs og tengivirkis

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. febrúar 2020, breytingu á Aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022 sem samþykkt var af hreppsnefnd 20. nóvember 2019.

Í breytingunni felst að skilgreina 0,8 ha iðnaðarsvæði (I7) fyrir tengivirki í landi Lækjartúns II norðan Suðurlandsvegar. Jafnframt verður Selfosslína 2 felld út og gert ráð fyrir um 10 km jarðstreng í hennar stað.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.