Fréttir


  • Miðmundarholt

22.12.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Ásahrepps vegna verslunar- og þjónustusvæðis í Miðmundarholti (Þ5)

Skipulagsstofnun staðfesti, 17. desember 2020, breytingu á Aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. nóvember 2020.

Í breytingunni felst að um 10 ha íbúðarsvæði (Í3) er breytt í verslunar- og þjónustusvæði (Þ5) þar sem gert er ráð fyrir gistiþjónustu á sjö lóðum auk þess sem íbúðir eru einnig heimilaðar á svæðinu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.