Fréttir


25.7.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógarbyggðar vegna frístundabyggðar Skálabrekka og Heiðargarður

Skipulagsstofnun staðfesti, 25. júlí 2019, breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027, sem samþykkt var í sveitarstjórn 20. febrúar 2019.

Í breytingunni felst að frístundabyggðin F10 Skálabrekka og Heiðarbær er stækkuð um 0,6 ha inn á svæði sem áður var landbúnaðarsvæði.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.