Fréttir


28.9.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna Tjarnavirkjunar

Skipulagsstofnun staðfesti 27. september 2018 breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2005-2025 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. ágúst 2018.

Í breytingunni felst að 12 ha landbúnaðarsvæði er breytt í iðnaðarsvæði (I10) fyrir allt að 1 MW vatnsaflsvirkjun í Eyjafjarðará í landi Tjarna, Hólsgerðis og Halldórsstaða. Auk þess er skilgreint nýtt efnistökusvæði (ES32).

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar hún hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.